Meira um Fjármálafréttir

Sveinn Sigurbjarnarson
Fjármálafréttir voru fyrst settar í gang 2024. Sveinn Sigurbjarnarson heldur veitunni úti. Sveinn er mikill áhugamaður um fjármál og viðskipti - bæði með áherslu á praktísku hliðarnar en ekki síður sálfræðilega hlutann. Hann er stúdent af viðskiptabraut Verkmenntaskólans á Akureyri og stundar nú B.S. nám í Viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.
Fjármálafréttir hófust á yfirferð á viðskiptafréttum vikunnar í stuttum samantektum á samfélagsmiðlum. Útgáfan færðist svo meira yfir í fræðslu og vinsælustu myndböndin eru úr svokölluðu Ársreikninga horni. Þar fer Sveinn yfir þekkt íslensk vörumerki og greinir ársreikning þeirra á einfaldan hátt. Einnig eru fræðslumyndbönd og fréttaskýringar hluti af útgáfunni.
Sveinn stefnir á að halda útgáfu á samfélagsmiðlum áfram þar sem mikill áhugi er á efninu, og að auki verður hægt að finna dýpri samantektir á bloggsíðu Fjármálafrétta.is.


