Ertu ríkur ef þú ert á háum launum?
- Sveinn Sigurbjarnarson

- Feb 17
- 1 min read

„Hann er með 1,5 milljón á mánuði – hann er ekkert eðlilega ríkur.“
Þetta er setning sem maður heyrir oft. En hún byggir á einni stærstu mýtu fjármála: að há laun jafngildi auði.
Laun eru tekjur. Auður eru eignir. Munurinn er gríðarlegur.
Í vestrænum samfélögum er talað um lífgæðakapphlaupið. Því hærri sem launin verða, því dýrari verður lífsstíllinn. Stærra hús. Dýrari bíll. Betri veitingastaðir. Dýrari ferðalög.
Í mörgum tilfellum fer launahækkunin ekki í eignamyndun. Hún fer í skuldsettan lífsstíl.
Og þá gerist þetta: Launin hækka – en fjárhagslegt svigrúm helst óbreytt.
Dæmið
Segjum að þú sért með 1,5 milljónir útborgaðar á mánuði. Barnlaus og býrð ein/n.
• 600.000 í afborganir af flottri íbúð
• 200.000 mánaðargreiðsla í dýran bíl
• 230.000 í almenn útgjöld
Eftir standa 470.000 krónur.
Á pappír lítur þetta vel út. En svo bætist við:
• Veitingastaðir
• Ferðir
• Fatnaður
• Skemmtanalíf
Og skyndilega eru kannski 50.000 krónur eftir í lok mánaðar sem er þó eitthvað, en lítið í samamburði við launin.
Þú ert með 1,5 milljón í laun – en lifir samt frá launaseðli til launaseðils.
Hvar verður auður til?
Há laun skapa tækifæri.
En auður verður ekki til nema þú breytir hluta launanna í eignir sem:
• Hækka í virði
• Skapa tekjustreymi
• Vinna fyrir þig
Ef þú eyðir öllu sem þú færð, þá ertu einfaldlega vel launaður starfsmaður – ekki fjárhagslega frjáls einstaklingur.
Sannleikurinn
Laun gera þér kleift að verða ríkur.En þau gera þig ekki ríkan sjálfkrafa.
Munurinn liggur í:
• Sparnaði
• Fjárfestingum
• Eignamyndun
• Sjálfsstjórn
Og það er ástæðan fyrir því að sumir á 600.000 launatjékka eru ríkari en aðrir á 1,5 milljóna tjékka.

Comments